Þetta kunna fleiri: http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/356276/#comments

Picture 493
 

 

 

 

 

 

 

 

 Ég held að það væru bara Liberals sem fíluðu Woody Allen og Roth.


Egill og brenndar bækur II

 

 

,,Að gefa út rasíska bók er að loka á jafnrétti. Að brenna sömu bók í táknrænni athöfn er að opna fyrir umræðu um hvernig samfélagi við viljum búa í og með því að hafna hlutum sem eru fordómafullir opnum við á jafnrétti?"

http://youtube.com/watch?v=DybaKFx1i_8

 Ég las þessi athyglisverð orð Katrínar Önnu á bloggi hennar og verð ég að játa að þessi orð vöktu mig til umhugsunar; auðvitað komu upp klisjur eins og orð Heines ,,Whenever books are burned, men also in the end are burned" Því miður finn ég þetta ekki á þýsku þannig ég læt þar við sitja. Samt þegar ég hugsa um þessi orð hans þá held ég að það hafi aldrei hvarflað að honum að þau yrðu notuð til að vara við hættur nasismans, sem eru vitaskuld skiljanleg tilhugsun. Allra síst hefðu honum dottið það í hug að þessi orð yrðu notuð til að verja kynþáttahyggju bókarinnar Tíu litlir negrastrákar. Heine skrifaði t.d. höfundi bókarinnar Uncle Tom's Cabin og þakkaði henni fyrir vel unnin störf í þágu mannréttinda; sem og Dickens, George Sand og Viktóría drottning[1]. Tolstoy vísar meira að segja í bókina þegar hann fjallar um hvað list sé. Við vitum sennilega samt aldrei hvort að Tolstoy hefði bætt við Tíu litlum negrastrákum sem dæmi um hvað teldist til háleitinnar listar, þ.e.a.s. ef hann hefði lifað lengur. En hver veit?

 ,,Because of Heine's Jewish background, the Nazis insisted that the poet's songs should be marked 'author unknown' in poetry collections". Ekki nóg með það að fræg verk eftir gyðinga hafi verið brennd, og merkilegt folk innan trúarinnar send til gasklefana, heldur var það markviss stefna nasistanna að útrýma þessu fólki. Jú, hvernig tókst þeim það? Með því að ala á ótta og andsemísk öfl sem höfðu verið til í nokkrar aldir. Enn fremur voru fjölmiðlar notaðir, flestir kannast við Triumph des Willens. Þó kannast ekki allar við þær skopmyndir sem voru notaðar til að lítilsvirða gyðinga, eða hvernig þessi áróður var notaður til ,,afmennska" þetta folk. Sambærilegt dæmi eru teikningar Dr. Seuss sem notaðar voru í áróðursskyni og vita allavega sumir hvernig fór fyrir Japönum í Nagasaki og Hiroshima og á meðan á stríðinu stóð hvað gerðist í Bandaríkjunum.

http://www.calvin.edu/academic/cas/gpa/sturmer.htm

http://www.fpp.co.uk/BoD/origins/caricatures_collection.html

http://www.dartmouth.edu/~hist32/History/S31%20-%20The%20Dark%20Side%20of%20Dr.%20Seuss.htm

Hver ætlar að neita að þessar myndir séu rasískar? Skiptir umræðuhefðin máli? Við náttúrlega tókum ekki þátt í að smala saman Japönum. Okkur þætti samt skrítið að sýna börnum okkar þessar myndir Dr. Seuss. Eða verður þetta í lagi því það er þýdd vísa og Muggur?

Egill:

,,Raunar segir í grein um Fischer sem ég birti hér á vefnum um helgina að hann hafi legið í Mein Kampf og slíkum ritum, og ekki farið leynt með aðdáun sína á Adolf Hitler".

Til að benda á galla Fischer vísar Egil Helgason í lesvenjur Fischers og ber honum söguna ekki vel, hann er gyðingahatari. Það vitum við öll. Samt spyr maður sig. Ef menn liggja yfir rasískum barnabókmenntum á miðjum aldri, hlýtur maður þá ekki að draga álytkun um það að viðkomandi hafi þannig skoðanir? Eða eru það rök Egils? Eða verða menn að lofsema Hitler eða höfundinum sjálfum? Eða á textinn sér kannski ekki líf? Derrida sagði víst ,,There´s no racism without a language".

http://kristjanb.blog.is/blog/kristjanb/

Eftir að hafa breytt bloggfærslu sinni þá vísar Egil í Kristján fyrrum bókmenntafræðinema sem segir:

,,En fyrst að við erum vanbúin og höfum í raun mjög litlar rannsóknir í höndunum um sögulegar víddir kynþáttahyggju á Íslandi og lifandi umræðuhefð um málið verða menn svolítið æstir og sækja því um leið nánast beint í umræðuhefðina eins og hún hefur t.d. þróast í Bandaríkjunum, þar sem hún er eðlilega hluti af réttindabaráttu svartra, sbr. hina áðurnefndu bloggfærslu Gauta Eggertssonar. Það gengur hins vegar ekki nema upp að vissu marki. Saga íslenskrar kynþáttahyggju er örugglega ekkert í grundvallaratriðum öðru vísi en saga annarrar kynþáttahyggju en hún byggir ekki á skipulögðu þrælahaldi og kerfisbundinni kúgun annars kynþáttar. Við erum einfaldlega að taka fyrstu skrefin núna þessi misserin í veröld sem sprengir þá gagnhvítu veröld sem flestir Íslendingar eldri en þrítugir ólust upp í. Ég veit að málið snýst um tilfinningar aðstandenda og ótta foreldra og ættingja við viðtökur samfélagsins við börnum sínum og sínum nánustu en séð úr kaldrananum verða viðbrögðin oft glannalega vanstillt og munu ekki leiða til neins skilnings á hlutverki kynþáttahyggju í íslensku samfélagi".

Gott og vel. Til að einfalda málin nánar skal ég gera grein fyrir minni afstöðu. Það er engin að tala um umræðuhefð. Og hvað þýðir það nákvæmlega? Það er nefnilega lítil umræðuhefð um kynþáttahyggju á Íslandi, þannig það eru mistök að sækja í ,,umræðuhefð" - nei, afsakið menningarsögu þjóða og sögu kynþáttahyggju undanfarnar aldir? Hefur Ísland þá aldrei mótast af erlendum straumum? Kom þessi bók ekki út í þýðingu? Hættir hún að hafa öll þessi tengsl? Góð bókmenntafræðileg túlkun.

Þessi rök verða enn spaugilegri ef rýnt er í þær bækur sem Egil vitnar í blogginu sínu. Jú, það er nú lítil umræðuhefð fyrir slátrun gyðinga. Já, þessi meginlandssaga er furðuleg, ekkert slæmt sem gerðist í Antioch eða Armeníu nei....

Ísland er undanskilið frá því að sýna umburðarlyndi...* hóst*

Erum við ekki sammála um það að bókin í eðli sínu er rasísk og myndirnar jafnvel verri? Eigum við þar af leiðandi að álykta sem svo að Ísland er sérfyrirbæri hvað varðar myndun skoðanna og jafnframt hvernig birtingarform kynþáttahyggju birtist? Er Muggur  laus allra mála? Kannski endurspeglar endurútgáfa bókarinnar bara þau viðhorf sem ríktu þá og ríkja ennþá. Kannski eru þetta viðhorf skyldmenna?

,,En ég held að menn þurfi að hafa meira til síns máls en bandarískt umræðusamhengi til að negla niður rasismann. Hvað gekk Muggi t.d. til? Ten Little Niggers virðist t.d. eftir því sem ég kemst næst hafa verið breskt kvæði en ekki bandarískt, en byggt á bandarísku kvæði sem hét Ten Little Indians. Bæði kvæðin eru samin á hátindi hugmyndafræðilegrar kynþáttahyggju á Vesturlöndum, rétt um 1870. Seinna var kvæðið svo myndskreytt víða um lönd og ég hef haft upp á versjónum á öllum Norðurlandamálum, hollensku, þýsku og frönsku. Leikrit byggt á kvæðinu virðist vera sett upp reglulega í mörgum leikskólum hérlendis og kvæðið er inni á heimasíðum leikskóla sem hluti af efnisskránni og ég veit að það er víða sungið, t.d. á jólaskemmtunum"

Eigum við að afsaka Mugg fyrir þetta og segja sem svo að hann hafi aldrei séð negra holdi klæddur? Mig rámar samt í það Íslendingar hafi nú alveg séð svart fólk, kannski aðallega í Köben eins og Vilhjálmur Finsen nefnir í bók sinni Alltaf á Heimleið eða hinni Enn á heimleið. Man ekki hvor það var ekki en skiptir ekki öllu máli. Þar misbauð Íslendingum að þurfa vera flokkaðir eins ,,negrar" og ínúitar. Væntalega var sú umræðuhefð dönsk - eða kannski íslensk? Eða er umræðuhefð ákveðin flóttaleið til að hylja yfir rökleysi höfundarins? Síðast vissi ég ekki betur en til þess að þær bókmenntir, bókmenntastraumar, kvikmyndir, ljósmyndir og málverk sem bárust til Íslands hafi verið að mestu frá Vesturlöndum, hvort sem var Bretland eða Bandaríkin. Því finnst mér furðulegt að fleygja því fram að skipti einhverju máli hvort að bókin sé samin úr ,,umræðuhefð" Bretlands eða Bandaríkjanna. Enda segir Kristján sjálfur eins og er feitletrað hér fyrir ofan: ,,á hátindi hugmyndafræðilegrar kynþáttahyggju á Vesturlöndum, rétt um 1870". Kallast þetta ekki að skjóta sig í fótinn og þar af auki alhæfa um hvenær sá hátindur var? Til gamans má einnig geta að ef leikrit eða kvæði er samið í Bandaríkjunum hlýtur það að vera bandarískt(nema maður eigi við undirflokk, t.d. bókmenntir Créóle, útlendingur skrifar í viðkomandi landi). Þó svo að það hafi komið út bresk útgáfa þá viðhaldast samt tengslin. Það er líka jafnvel absúrd að reyna villa fyrir svona. Síðast vissi ég ekki betur en til þess að bæði löndin væru enskumælandi - og bæði lönd tóku þátt í þrælaverslun: ,,lifandi umræðuhefð um málið verða menn svolítið æstir og sækja því um leið nánast beint í umræðuhefðina eins og hún hefur t.d. þróast í Bandaríkjunum, þar sem hún er eðlilega hluti af réttindabaráttu svartra, sbr. hina áðurnefndu bloggfærslu Gauta Eggertssonar".

Verð að taka undir með Oddgeiri sem kommentaði hjá mér þegar hann segist ekki skilja hvernig bókin geti bara verið fordómafull í bandarísku samfélagi. Sennilega getur ekki orðin umræðuhefð hér á landi vegna meintrar tilraunar nasista og annarra þjóða til að útrýma Gyðingum í Evrópu, því jú við vorum bara ekki með. Ef bókin Tíu litlir júðar kæmi út þá þætti mér vænt um að sjá Kristján reyna leiða þessi rök áfram. Vil síst endurtaka mig en það væri svona svipað eins og ef kvæði væri sungið á jólin í Evrópu um júða. Þannig er þessi bók um ,,negrastrákana"

Ég leyfi ég mér að segja ,,the shit would hit the fan" ef ,,júðabókin" væri gefin út hér eða annarsstaðar. En því við höfum ekki lent í þessa ,,umræðuhefð" áður þá virðist allt í vera í góðum filing. Hvernig er það heima hjá afkomenda Muggs: grjónagrautur, möndlugjöf, maturinn, pakkar og síðan sungið: Tíu litlir negrastrákar? ,,And for an encore" er lesið úr ræðum forseta Írans og geðsjúklings David Duke um að helförin sé bara lygi? Eru kannski skopmyndir sýndar af gyðingum, svo ekki sé villst um hversu gráðugur kynþáttur þeirra sé í raun og veru? Til gamans væri hægt að syngja kvæðið ,,Sprengjum Ísrael" og bókin gæti verið myndskreytt af Erró?

,,Hvaða þjóðfélagshópar á Íslandi hafa haft beinan hag af kúgun kynþátta í eigin landi?"

Ekki veit ég það. En þarf kynþáttahyggja að birtast sem kúgun; getur hún undir ekki legið í undirmeðvitundinni, brotist fram í skrifum og gjörðum? Er það ekki rasismi að vilja meina fólki sem er öðruvísi á litinn að setjast hér að? Eða að sýna ekki umburðalyndi og tillitssemi?

Annað nærtækt dæmi er úr landi sem ég bjó í þegar ég var ungur, Holland:

http://en.wikipedia.org/wiki/Zwarte_Piet http://people.cornell.edu/pages/bs16/Christmas/6_to_8_black_men.txt

 

 

[1] A Pictorial History of The Negro In America

ds9

Egill og ímyndaðar brennur

 

Skrifaði þetta sem komment hjá Agli, á heimasíðu hans. Ummæli mín voru fjarlægð.  

Bókmenntir eru æðislegar, því verður aldrei neitað. Það er kannski þess vegna að mér finnst pínlegt að lesa skrif Egils Helgasonar þegar hann líkir umburðarlyndi fólks við nasista og sturlaða fylgjendur Savonarolas.

Óneitanlega minna orð hans á dæmisögu Æsóps þegar maðurinn státar sig af því að vera bestur meðal allra dýra. Og til að sýna mátt sinn vísar þessi tiltekni maður á styttu af Herakles og segir við ljónið: sjáðu nú hversu megnugur maðurinn er. Svarið sem ljónið gefur er einfaldlega: ,,Það sannar ekkert, það er einfaldlega bara vegna þess að maðurinn skapaði þessa styttu sjálfur."

Boðskapur sögunnar er því sáraeinfaldur: sitt sýnist hverjum.

Að mati Egils er tilraun fólks, á þessu skeri til að reyna vekja aðra til umhugsunar um firringu bókarinnar Tíu Litla Negrastráka lögð að jöfnu við bókabrennur nasista. Að sama skapi er gert tilraun til að fegra lofræður þeirra sem hampa bókinni sem meistaraverki sem eigi sér varla hliðstæðu í íslenskri bókmenntasögu. Líkt og verkið væri sambland af Laxness og Kjarval með vott af Hannesi Péturssyni.

Þrátt fyrir að tilraun ákveðinnar klíku hérlendis til að reyna tengja þessar teiknaðar myndir við helstu listsköpun sem fyrirfinnst erlendis er grátleg, þá er verra að hlusta á suma, og mun verra að lesa skrif annarra. T.d. segir einn viðmælandi í Ísland í dag þegar Mörður minnir á hversu firrtar myndirnar séu ,,er þá ekki bara hægt að uppfæra myndirnar?" Þetta sýnir að umræðan er á villigötum.

Aðrir segja að þetta sé list, aðrir líta ekki í bókina og minnast þess óljóslegt að hafa lesið hana, eða að hafa látið lesa hana fyrir sig fyrir svona þrjátíu árum jafnvel. Og segja svo: Mér fannst hún bara ekkert ljót. Alltaf gott að hafa skoðun á málum sem maður hefur enga þekkingu á. Sjónvarpið sér til þess. Fólk er þó að kaupa bækur - það er jákvætt.

Egill:

,,Negrastrákabókin hefur engar slíkar skírskotanir hér á landi sem talað er um í bloggfærslu míns ágæta vinar Gauta Eggertssonar". 

Máli sínu til stuðnings, eins oft áður, þá fleygir Egill þessum orðum fram án þess að útskýra þau nánar. Líkt og um boðorðin sjálf væri að ræða. Bara því Egill neitar að horfa í augu við staðreyndir málsins þá er málið talið útrætt. Eitt núll fyrir Agli. Ferð til Naxos í boði. Nóg að gera að koma með hræðsluáróður, líkt og tekið sé beint úr smiðju öfgrahægrisinna.

Að vísu nefnir hann að hann hafi nú lesið bókina fyrir son sinn og litli snáðinn hafi bara haft gaman að. Gott og blessað með það. Samkvæmt þeim rökum, ef Hitler hefði átt barn og lesið fyrir það bók með titlinum Kriegsanstifter þar sem gyðingurinn, eða réttast sagt júðinn væri sýndur með uggvænlegt nef sem gæfi til að kynna slóttugt eðli hans og nísku þá væri allt í stakasta lagi. Bara svo það sé á hreinu þá er ég ekki að líkja Agli við Hitler. Egill er ekki stórmenni í mannkynssögunni og verður það aldrei.

Að sama skapi sýnir þetta dæmi hversu firrt rökin hans Egils eru. Ef barn hans er alið upp þannig að því sé innrætt, að það sé í lagi að drepa negra þá hlýtur eitthvað að vera að heima hjá Agli. Ekki nóg með það þá hann kýs að sniðganga þær röksemdir sem komu fram á heimasíðu Gauta heldur kastar hann fram í gríni, að minnsta kosti gerir hann tilraun til að vera fyndinn, að umræðan um staðalímyndir sé bara vitleysa.

Mér er spurn. Eru staðalímyndir af hinu góða? Hvað myndi Egill segja t.d. við því ef ég gæfi út vísu þar sem hamrað væri á því hversu gráðug feitu börnin séu, hvernig þau arðræna þriðja heiminn með ofsafegnu áti allar stundir; hvernig það sé ómögulegt með öllu að skilja slík börn eftir því þau kafna úr áti, eða springa úr græðgi, og eru alltaf útötuð í matarflekkum? Bókin gæti fengið titilinn Tíu feitir hrokkinhærðir strákar. Hún yrði síðan lesin á öllum leikskólum og ef pabbi spyr: "eru þau eitthvað öðruvísi" þá myndi sonurinn segja: Nei, þau eru bara svo feit! Jé minn eini! Svakalega yrði það fallegur heimur.

Það læðir samt grunur að mér að Egill væri ekki snöggur að hefja málsvörn þeirrar bókar, er þó ekki viss. Hann er líklegur til alls. Allavega myndi ég ekki gera það. Hins vegar er þetta dæmi um feitu börnin samt ekki nærri því nógu sterkt til að lýsa þeim duldu merkingum og sýnilegu svívirðingum sem bókin Tíu Litlir Negrastrákar býr yfir.

,,Og eins og Kolbrún Bergþórsdóttir bendir á þá enda negrastrákarnir vel. Síðasti strákurinn fer í bíó, hittir stelpu, þau eignast fullt af börnum og eru hamingjusöm það sem eftir er. Fara og uppfylla jörðina".

Ég verð bara að lýsa furðu minni á hversu heimskulegt það sé að láta það eftir sér að kvæði skuldi enda vel þó að níu strákar hafi látið lífið, eða jafnvel misst útlimi eða orðið fyrir niðurlægingu. Varla endar bókin vel því aðeins einn þeirra situr eftir? Jú, samkvæmt Kolbrúnu og Agli. Því hann eðlar sig eins og kanína, sem er víst þekkt staðalímynd tengd við fólk með dökkt hörund.

Sagt er frá því í bókinni Toms, Coons, Mulattoes, Mammies and Bucks að staðalímyndin ,,buck"(geithafur, satýr eða hver sem þýðingin yrði á íslensku) hafi fyrst komið fram í  kvikmyndmiðlinum í myndinni Birth of a Nation.

Buck er semsagt óstjórnlega graður blökkumaður sem leggur sífellt á ráðin um að komast í bólið með hvítri konu. Eða með öðrum orðum:

The brute caricature portrays Black men as innately savage, animalistic, destructive, and criminal -- deserving punishment, maybe death. This brute is a fiend, a sociopath, an anti-social menace. Black brutes are depicted as hideous, terrifying predators who target helpless victims, especially White women.

Þessi ótti hefur komið fram í bloggheimum, hins vegar gat þýðandinn á sínum tíma ekki hugsað sér að negri myndi sænga saman hjá hvítri og því er hún gerð að negrastelpu.Þessi hræðsla við villta svertingann kom kannski berlega í ljós fyrst þegar íslensk stjórnvöld sáu til þess að svarta ógnin steig ekki fæti á íslenska grund á meðan á stríðinu stóð og jafnvel fram eftir stríð. Maður spyr sig, var þetta kvæði jafnvel sungið á heimilum ráðamanna sem ákvaðu þetta á sínum tíma?

,,Ef út í það fer má líka segja að miklu verri skrumskæling á svörtu fólki blasi við okkur hvern dag í sjónvarpinu - í endalausum myndböndum þar sem ungir þeldökkir menn með gullkeðjur um hálsinn fara með einhvers konar músík en fáklæddar konur hrista á sér rassinn allt í kringum þá. Sumt af þessu kallast gangstarapp. Í því felst einkennileg upphafning á smákrimmahætti; eins og það sé æðsta markmið hvers ungs blökkumanns að vera glæpon. Þetta er daginn út og inn í sjónvarpinu, sérstaklega á stöðvunum sem börnin og unglingarnir horfa á, en yfir þessu heyrir maður samt ekki kvartað".

Gangster rap er staðreynd, hún er samt markaðsvara rétt eins og Christina Aguilera, Britney Spears og hvað sem hinar dúkkurnar heita. Ef salan er skoðuð er það augljóst að það eru úthverfabörn, sérstaklega efrimillistéttarbörn í Bandaríkjunum sem festa kaup á slíkri tónlist eins og ,,gangster rap". Ég get nú ekki sagt það ég hafi fyllst stolti þegar ég sá myndband með 50 Cent, hins vegar er fátt sem ég get gert í því. Það er ekki eins auðvelt að fást við mulningsvél Hollywoods og tónlistarbransans, sem oftar en ekki er samtvinnuð, en að fást við bókaútgefanda sem ákveður að endurútgefa úrelta bók sem ber vott af rasisma. 

Því miður sér 50 Cent eins og margir samstarfsbræður hans hag sinn í því að græða og lifa þessu bófalífi. Aftur á móti er öll tónlist á Popptíví og FM og allt þetta rusl vafasamt að mínu mati hvorteð. Það eru ekki bara bófrapparar sem eru að brengla sjálfsmynd heillar kynslóðar - það er líka píkupoppið og þau áhrif sem það hefur á ungar stúlkur.

Hvað sem því líður þá held ég að ég myndi kannski frekar kjósa að vera ríkur bófi - samanber Scarface eða James Cagney heldur en heimskur, latur eða falla fyrir hendi tryllts nauts. Svo einfalt er það.

,,Nokkur dæmi frá Agli"(Eða óljósar getgátur):  Nokkur andmæli frá mér.

,,Í klassískri sænskri bók, Bombí Bitt, er sagt frá hrossaþjófinum Niels Galle, sem er skemmtileg andhetja. Hann segir strákunum sem eru aðalpersónur bókarinnar frá því hvernig hann komst inn í leynifélagið Kuk Lux Lan. Það var með því að skjóta gyðing og setja byssuna í vasann á negra sem svo var hengdur fyrir vikið. Þetta er ein skemmtilegasta barnabók sem hefur verið skrifuð".

Ég játa fáfræði mína, hef ekki lesið þessa bók. Kíkti þó á gagnagrunn Lund háskólabókasafnins, næg eintök til. Hlakka til að komast í hana.  Verð samt að setja spurningumerki við það að barnabók sem lýsir því hvernig saklaus maður er hengdur fyrir morð, gæti talin verið til skemmtunar". Kannski hlakkar í Agli þegar farið er með stúlkuna í gasklefann í Auschwitz. http://youtube.com/watch?v=yFYplbiL40w 

Er þetta eitthvað sem fær Egil til að hlæja á kvöldin yfir poppi og kók? Þetta er mun virkari leið til að drepa júða, smala þeim saman, í staðinn fyrir að kviðrista einn.

,,Við getum nefnt Ólíver Twist með sinn Fagin, hreinræktaða staðalímynd hins ágjarna gyðings".

Já, það er einnig til útgáfa Will Eisners sem segir sögu Fagins. Hún er góð.  Annars skil ég ekki tilganginn með því að telja upp aðrar staðalímyndir. Er það til að reyna að villa fyrir umræðunni, að ýja að því að fólk vilji banna eða brenna þessar bækur? Mér hefur aldrei dottið það til hugar. Veit að Dickens meinti ekkert illt, er líka handviss um að Dickens hafi verið að sofa hjá þeldökkum konum í ferð sinni til Ameríku, þannig að Dickens er bara í ,,gúddí" hjá mér. Dickens er líka einn mesti höfundur bókmenntasögunnar, gæti vitnað í Dóstjóevskí eða Eisenstein þar.

,,Bækur Kiplings. Með sinni upphafningu á nýlendustefnunni".

Þó svo að einhverjar bækur Kiplings fáist við nýlendustefnu Breta á Viktoríutímabilinu þá sé ég ekki tengslin við bókina sem um ræður. Enn og aftur stórkostlegur höfundur.

,,Kofi Tuma frænda. Karlinn er dæmigerður fyrir hinn auðsveipa svertingja sem lætur hvíta manninn kúga sig".

 http://en.wikipedia.org/wiki/Uncle_Tom%27s_Cabin". Held að Egill þurfi að lesa þessa bók, sem ég efast stórlega að hann geri eða hafi gert. Ég hef lesið hana hins vegar og mér þótti hún bara góð, rétt eins og Roots.

Uncle Tom's Cabin is dominated by a single theme: the evil and immorality of slavery. While Stowe weaves other subthemes throughout her text, such as the moral authority of motherhood and the redeeming possibilities offered by Christianity, she emphasizes the connections between these and the horrors of slavery. Stowe pushed home her theme of the immorality of slavery on almost every page of the novel, sometimes even changing the story's voice so she could give a "homily" on the destructive nature of slavery (such as when a white woman on the steamboat carrying Tom further south states, "The most dreadful part of slavery, to my mind, is its outrages of feelings and affections-the separating of families, for example."). One way Stowe showed the evil of slavery was how this "peculiar institution" forcibly separated families from each other.

Nota bene: ekki gleyma því sem Egill segir hér:

 ,,Við tókum satt að segja ekki eftir því að neitt væri að bókinni. Vorum heldur ekki að leita að því. Kannski erum við svona slappir í að greina staðalímyndir".

Hann er samt furðu góður að finna þær í Kofa Tómasar frænda. Eða er staðalímynd flóknara hugtak en það sem er ,,dæmigert"?

 ,,Kvikmyndina Birth of a Nation, merkilegt listaverk, gallað, en kannski fyrstu bíómyndina í nútíma skilningi".

Sé ekki hvernig Birth of a Nation eigi að teljast vera gölluð. Þetta er eins og kasta því fram að Andalúsíuhundurinn eða Citizen Kane séu gallaðar án þess að rökstyðja mál sitt. Egill er gjarn á að gera það nefnilega. Leikstjóri hennar ásamt Eisenstein eru brautryðjendur. Játa að það koma fordómar fram í henni; hún er samt meistarverk. Myndi þó aldrei hvarfla að mér að láta banna hana, hún á heima á söfnum og eða í DVD söfnum fullorðinna en ekki sem barnagæla eða jólavísa barna.

,,Stikkilsberja-Finn og Tuma Sawyer. Þær hafa raunar þegar verið gerðar útlægar úr mörgum bandarískum menntastofnunum; slíkt er andrúmsloftið þar".

Það er enginn sem vill banna Mark Twain eða Harry Potter ef út það er farið. Myndi samt ekki lesa kvæðið Ten Little Niggers fyrir barnið mitt.

,,Max og Móritz þar sem tveir pattaralegir þýskir drengir eru malaðir í myllu og svo étnir af hænsnum. Eða breytir einhverju að þeir eru hvítir?"

Já, það skiptir máli. Þarf að tyggja þetta ofan í manninn?

,,Áður hefur verið fjallað um Tinna í Kongó og Línu í Suðurhöfum".

Hér er öll greinin aftur: 

,,Kannski mætti gefa út einhvers konar index librorum proibitorum um barnabækur. Lista yfir bækur sem þarf nauðsynlega að banna. Eða er jafnvel búið að banna?"

 Kaþólikkar, þarf að segja meira? Næst mun Egill ásaka okkur um að hafa reynt að bregða fæti fyrir Galíeó, eða hafa sett Bruno fyrir auto da fé og síðan kveikt í honum á sínum tíma. Kannski í frístundum okkar viljum við banna getnaðarvarnir.

,,Þar væri að finna Tinna. Sérstaklega Tinna í Kongó. Líka Tinna í Sovétríkjunum. Seinni Tinnabækurnar eru kannski í lagi."

Tinnabækurnar eru æðislegar. Tinni í Kongó er barn síns tíma, sem Hergé sá jafnvel eftir síðar. Bókinni hefur verið breytt og það er lítið hægt að gera í því. Persónulega fyrir mitt leyti finnst mér það skárra að Tinni sé að kenna börnum stærðfræði fremur en að boða heimsvaldastefnu( þetta orð er drepfyndið í samhengi við Belgíu) Belga. Egill hlýtur að vera sammála því. Eða er það allt gott og blessað að arðræna heila álfu?

,,Og Andrés Önd. Svíar vildu banna hann hér um árið vegna þess hvað fjölskyldutengslin í Andrési eru annarleg. Hann er heldur ekki í buxum".

Ég get ekki svarað fyrir tepruskap nokkurra Svía. Mér finnst Andrés bestur án buxna, rétt eins og Howard the Duck og fleiri endur.

,,Það mætti banna Múmínálfana. Kvenstaðalímyndirnar þar eru yfirgengilegar. Múmínmamma er alltaf að hella upp á kaffi og baka pönnukökur. Snorkstelpan hugsar um ekkert annað en að punta sig".

Hugsanlega mætti banna Þórberg því hann talar um vændiskonur í skrifum sínum og útlistar kynni sín af þeim. Tengist það samt umræðunni um rasisma? Bendi ennfremur á það mér finnst gaman að baka og að búa mér til te. Það er mun ákjósanlegra heldur en t.d. að hengja sig eins og kemur fram í kvæðinu Ten Little Niggers. Það mætti jafnvel banna Odysseifskviðu því Odysseifur leikur sér við kvensur um öll höf, á meðan hún Penélópe greyið heklar eða saumar, eða hvað sem hún gerir nú til að tefja fyrir vonbiðlum sínum. Þessi nálgun er vægast sagt fáranleg.  Það er þó fallegt að Egill skuli hugsa um staðalímyndir kvenna; sérstaklega þar sem honum er svo uppsigað við femínista almennt.

"Soffía frænka í Kardimommubænum er líka staðalímynd. Hún er alltaf að taka til og skammast".

Er þessi setning grín? Kannski ættir Egill að kynna sér hvað staðalímynd er.

,,Ég er opinn fyrir tillögum um fleiri bækur sem mætti setja á þennan lista. Sendið mér tölvupóst. Tengillinn er hérna ofarlega til vinstri á síðunni - silfuregils@eyjan.is".

 Frekar eyði ég mínum tíma í að lesa bækur og þekkja þær heldur að láta aðra benda mér á fleiri bækur til að slá um mig með til að mynda mér pópulismaskoðun.

 


Ljóta, ljóta stelpan

Geir H. Haarde er ekki mikill smekksmaður. Ekki nóg með það að þetta sé eiginlega ljótasta stelpan á ballinu sem hann er að gera hosur sínar grænar fyrir, heldur er hún ferlega leiðinleg.

 Auðvitað hugsar Geir um eitt og ekkert annað. Hann þarf að fá einhverja heim.


mbl.is Geir: Úrslitin kalla ekki á snöggar breytingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athyglisvert

,,Norska ríkisstjórnin er að undirbúa löggjöf þar sem samkynhneigðir fá sömu réttindi og gagnkynheigðir, til hjónavígslu í kirkju. Norska blaðið Aftenposten segir að þessar fréttir hafi lekið út um fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar. Varaformaður Kristilega þjóðarflokksins segir að þeir séu í losti yfir þessum tíðindum, og muni berjast með kjafti og klóm gegn frumvarpinu".

 

Af hverju er þetta ekki kosningamál? 


Logic

Þetta myndi aldrei gerast ef Starfleet réði öllu.

mbl.is Scotty týndur eftir geimferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kentucky Fried Chicken

Já, svona er heimurinn firrtur. Stórfyrirtækin eru farin að eigna sér abstrakt hugmyndir, hugtök og orð.

Ætla gæta mín að tala ekki um ,,happy meals" eða gleðimáltíðir.

http://www.youtube.com/watch?v=YBblOPD9vVs


mbl.is Fjölskyldumáltíð veldur fjaðrafoki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamlar fréttir.

Kallast að vera vegan eða jurtaæta. Annars voru þessi grey hræðilega vitlaus. Bara skondið að vera lesa gamlar og þýddar fréttir á mbl.is.

 

 

 

 


mbl.is Par dæmt fyrir að drepa barn sitt úr næringarskorti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viska

Svo ég vitni í vin minn ,,af hverju deyr Framsókn ekki bara? Þú skalt drepast Framsókn!".
mbl.is Fylgi Samfylkingar og Framsóknarflokks eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

http://news.bbc.co.uk/2/hi/africa/6589763.stm

On the track, they call him "blade runner" - thanks to his carbon fibre prosthetics, custom-made in Iceland.

 Athyglisverð frétt. Þökk sé Össuri  getur hann kannski fengið að taka þátt í Olýmpíuleikunum.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband